Lífæðar landsins

Lífæðar landsins

Lífæðar landsins er hlaðvarp Samorku um orku- og veitumál.

Snjallir mælar -betri yfirsýn
Lífæðar landsins
Snjallir mælar -betri yfirsýn

Recent Episodes

Sept. 28, 2026

Snjallir mælar -betri yfirsýn

Hvað er eiginlega svona snjallt við snjallmæla og hvað breytist þegar hefðbundnum mælum er skipt út fyrir snjalla? Í þessum þætti Lífæða landsins ræðum við snjallmæla á mannamáli við Ingu Láru Jónsdóttur, framkvæmdastjóra þjónustu og snjallra lausna hjá HS Veitum, og Valtý Guðmundsson, deildarstjóra mælaumsýslu þar á bæ. Við förum yfir hvað snjallmælar eru og hvernig þeir virka, hvaða ávinningur felst í þeim fyrir heimili, fyrirtæki og veiturnar sjálfar og hvernig innleiðing þeirra gengur fyri
Aug. 10, 2026

Undir yfirborðinu: Fráveita framtíðarinnar

Fráveitutilskipun Evrópusambandsins mun hafa víðtæk áhrif á fráveitumál hér á landi og kalla á miklar framkvæmdir og fjárfestingar á komandi árum. Hvernig erum við í stakk búin til að takast á við þau verkefni? Í þættinum ræðir Hafdís Helga Helgadóttir við Aron Heiðar Steinsson, veitustjóri á Umhverfis- og framkvæmdasviði Reykjanesbæjar og Reynir Sævarsson, sem leiðir viðskiptaþróun og nýsköpun hjá EFLU, um stöðu fráveitumála á Íslandi, kröfur nýju tilskipunarinnar og þær áskoranir og tækifæri
June 25, 2026

Orkan í efnahagsljósi

Orkumálin eru krufin í hagfræðilegu samhengi í þessum þætti Lífæða landsins. Jón Gunnarsson greinandi hjá Samorku og Friðjón Þórðarson framkvæmdastjóri Qair á Íslandi kafa ofan í þau mál með Hafdísi Helgu Helgadóttur, upplýsingafulltrúa Samorku.
Dec. 19, 2025

Stækkun orkuvers í skugga jarðhræringa

Þann 1. desember var sjöundi áfangi Svartsengis, orkuvers HS Orku, tekinn í notkun og jókst þar með framleiðslugeta þess um þriðjung. Það er í sjálfu sér fréttnæmt að við bætist uppsett afl hér á landi, en í þessu tilfelli er það ekki síður vegna þess að orkuverið var stækkað á tímum jarðhræringa, eldgosa og mikillar óvissu. Stóðst framkvæmdin þó allar verk- og tímaáætlanir. Rafn Magnús Jónsson yfirverkefnisstjóri HS Orku og Yngvi Guðmundsson yfirverkfræðingur HS Orku ræða við Lovísu Árnadóttur
30
Nov. 10, 2025

Vestfirðir eru heitur reitur

Á Vestfjörðum hefur verið notast við rafkyntar hitaveitur í stað hefðbundinna jarðhitaveitna, því lítið hefur fundist í gegnum tíðina af nægilega heitu vatni sem gæti nýst til húshitunar. En með tækniframförum og myndarlegu átakistjórnvalda í jarðhitaleit á svæðinu hefur vonin aldeilis kviknað um að þetta geti breyst, íbúm á svæðinu til mikilla hagsbóta. Elena Dís Víðisdóttir, verkfræðingur á orkusviði hjá OrkubúiVestfjarða, ræðir uppganginn og stemninguna á Vestfjörðum við Lovísu Árnadóttur og
29
Oct. 10, 2025

Þétt alþjóðlegt tengslanet margborgar sig

Öflugur hópur frá Íslandi, fulltrúar orkufyrirtækja, háskóla, verkfræðistofa og fleiri, sóttu Evrópsku jarðhitaráðstefnuna í Zurich frá 6. til 9. október sem EGEC – European Geothermal Energy Council skipulagði. Þessi góða þátttaka er til marks um forystuhlutverk Íslands í nýtingu jarðhita og margvíslega alþjóðlega samvinnu um rannsóknir, nýjungar og annað sem eflir þessa grænu orkulind. Sveinn Helgason sat ráðstefnuna fyrir hönd Samorku og talaði við nokkra úr íslenska hópnum fyrir Lífæðar lan