Episodes
Oct. 21, 2026
Fyrsta vindorkuverið: Fólkið á bak við myllurnar
Fyrsta vindorkuver Íslands er komið í gang við Þjórsá og þá er gott tækifæri til að setjast niður og líta til baka. Í þessum þætti spjöllum við á léttum nótum við Elínu Hallgrímsdóttur, staðarverkfræðing, og Sigurgeir Björn, yfirverkefnisstjóra Vaðölduvers, bæði hjá Landsvirkjun. Þau hafa fylgt verkefninu í gegnum súrt og sætt. Hér rifja þau upp það sem kom á óvart, það sem stóð upp úr og það sem þau lærðu á leiðinni frá hugmynd að fyrstu vindmyllunum sem snúast á hálendinu.
Sept. 28, 2026
Snjallir mælar -betri yfirsýn
Hvað er eiginlega svona snjallt við snjallmæla og hvað breytist þegar hefðbundnum mælum er skipt út fyrir snjalla? Í þessum þætti Lífæða landsins ræðum við snjallmæla á mannamáli við Ingu Láru Jónsdóttur, framkvæmdastjóra þjónustu og snjallra lausna hjá HS Veitum, og Valtý Guðmundsson, deildarstjóra mælaumsýslu þar á bæ. Við förum yfir hvað snjallmælar eru og hvernig þeir virka, hvaða ávinningur felst í þeim fyrir heimili, fyrirtæki og veiturnar sjálfar og hvernig innleiðing þeirra gengur fyri...
Aug. 10, 2026
Undir yfirborðinu: Fráveita framtíðarinnar
Fráveitutilskipun Evrópusambandsins mun hafa víðtæk áhrif á fráveitumál hér á landi og kalla á miklar framkvæmdir og fjárfestingar á komandi árum. Hvernig erum við í stakk búin til að takast á við þau verkefni? Í þættinum ræðir Hafdís Helga Helgadóttir við Aron Heiðar Steinsson, veitustjóri á Umhverfis- og framkvæmdasviði Reykjanesbæjar og Reynir Sævarsson, sem leiðir viðskiptaþróun og nýsköpun hjá EFLU, um stöðu fráveitumála á Íslandi, kröfur nýju tilskipunarinnar og þær áskoranir og tækifæri ...
June 25, 2026
Orkan í efnahagsljósi
Orkumálin eru krufin í hagfræðilegu samhengi í þessum þætti Lífæða landsins. Jón Gunnarsson greinandi hjá Samorku og Friðjón Þórðarson framkvæmdastjóri Qair á Íslandi kafa ofan í þau mál með Hafdísi Helgu Helgadóttur, upplýsingafulltrúa Samorku.
Dec. 19, 2025
Stækkun orkuvers í skugga jarðhræringa
Þann 1. desember var sjöundi áfangi Svartsengis, orkuvers HS Orku, tekinn í notkun og jókst þar með framleiðslugeta þess um þriðjung. Það er í sjálfu sér fréttnæmt að við bætist uppsett afl hér á landi, en í þessu tilfelli er það ekki síður vegna þess að orkuverið var stækkað á tímum jarðhræringa, eldgosa og mikillar óvissu. Stóðst framkvæmdin þó allar verk- og tímaáætlanir. Rafn Magnús Jónsson yfirverkefnisstjóri HS Orku og Yngvi Guðmundsson yfirverkfræðingur HS Orku ræða við Lovísu Árnadóttur...
30
Nov. 10, 2025
Vestfirðir eru heitur reitur
Á Vestfjörðum hefur verið notast við rafkyntar hitaveitur í stað hefðbundinna jarðhitaveitna, því lítið hefur fundist í gegnum tíðina af nægilega heitu vatni sem gæti nýst til húshitunar. En með tækniframförum og myndarlegu átakistjórnvalda í jarðhitaleit á svæðinu hefur vonin aldeilis kviknað um að þetta geti breyst, íbúm á svæðinu til mikilla hagsbóta. Elena Dís Víðisdóttir, verkfræðingur á orkusviði hjá OrkubúiVestfjarða, ræðir uppganginn og stemninguna á Vestfjörðum við Lovísu Árnadóttur og...
29
Oct. 10, 2025
Þétt alþjóðlegt tengslanet margborgar sig
Öflugur hópur frá Íslandi, fulltrúar orkufyrirtækja, háskóla, verkfræðistofa og fleiri, sóttu Evrópsku jarðhitaráðstefnuna í Zurich frá 6. til 9. október sem EGEC – European Geothermal Energy Council skipulagði. Þessi góða þátttaka er til marks um forystuhlutverk Íslands í nýtingu jarðhita og margvíslega alþjóðlega samvinnu um rannsóknir, nýjungar og annað sem eflir þessa grænu orkulind. Sveinn Helgason sat ráðstefnuna fyrir hönd Samorku og talaði við nokkra úr íslenska hópnum fyrir Lífæðar lan...
Oct. 2, 2025
Hreint vatn er ekki heppni
Mikilvægt er að standa vörð um neysluvatnið okkar því það er okkar mikilvægasta auðlind. Í nútímasamfélagi verður það sífellt flóknara verkefni. Hrefna Hallgrímsdóttir, forstöðumanneskja vatnsmiðla hjá Veitum, ræðir við Lovísu Árnadóttur um vatnsveituna á höfuðborgarsvæðinu og minnir okkur rækilega á að hreint vatn er ekki heppni. Þátturinn kemur út 2. október, en þann dag árið 1909 var vatnsleiðsla frá Gvendarbrunnum fyrst tekin í notkun og telst dagurinn upphafsdagur vatnsveitu í Reykjavík.
28
Aug. 6, 2025
Mikilvægast að styrkja bakbeinið í flutningskerfi raforku
Orkuskipti og aukin eftirspurn eftir raforku kallar á mikla samvinnu í uppbyggingu raforkuinnviða. Kerfisáætlun Landnets hefur það hlutverk að áætla hvar og hvenær nýjar línur verða byggðar upp eða styrktar og þannig tryggja öruggan flutning raforku á milli landshluta. En uppbyggingin er umfangsmikil og mikilvægt að forgangsraða þeim verkefnum sem skila mestum ávinningi. Í þættinum fara þær Arngunnur Einarsdóttir sérfræðingur í viðskiptaþróun hjá Landsneti og Guðrún Margrét Jónsdóttir sérfræðin...
27
July 16, 2025
Djúpborun: Tæknilegt ævintýri sem getur skipt sköpum
Að bora djúpt ofan í jarðlögin til að ná í orku er eitthvð sem unnið hefur verið að árum saman hér á landi. Með þessu væri hægt að ná í meiri orku á sömu jarðhitasvæðum og þannig nýta jarðhitaauðlindina enn betur. En það fylgja því tæknilegar áskoranir að ætla sér að bora svona djúpt ofan í jörðina. Í þættinum ræðir Sigurður H. Markússon, leiðtogi djúpnýtingar hjá Orkuveitunni, um djúpborunarverkefnin hér á landi og hvernig árangur í þeim efnum getur skipt sköpum, ekki aðeins fyrir Íslendinga ...
July 4, 2025
Vaðölduver verður til
Hingað til hafa jarðvarmi og vatnsafl verið meginuppsprettur raforkuframleiðslu á Íslandi. Nú er breyting fram undan, því Vaðölduver Landsvirkjunar – fyrsta vindorkuver landsins – er komið á framkvæmda- eða rekstrarstig. Að mörgu er að huga þegar hafist er handa við að byggja eitthvað alveg nýtt og í þættinum fáum við að heyra meira um ferlið, undirbúning og upphaf framkvæmda, auk þess sem hægt er að sjá hvernig Vaðölduver kemur til með að líta út. Gestur þáttarins er Sigurgeir Björn Geirsson,...
June 23, 2025
Viðnámsþróttur vatns og ríkidæmi Íslands
Birna Guttormsdóttir, sérfræðingur hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, segir að ný stefna ESB um viðnámsþrótt vatns (European Water Resilient Strategy) sé yfirgripsmikil enda við margvíslegar áskoranir að glíma. „Stærsta markmiðið með stefnunni er að laga þessa brotnu hringrás vatnsins,“ segir í Birna í viðtali við Svein Helgason í Brussel, í hlaðvarpi Samorku. Birna Guttormsdóttir, sérfræðingur hjá framkvæmdastjórn ESB. Birna segir að Íslendingar standi svolítið með pálmann í höndunum á þe...
May 28, 2025
Snjöll samvinna er sterkasta vopnið
Netárásum á mikilvæga inniviði hefur fjölgað mikið sem kallar á öflugar varnir um tæknibúnað. Kristrún Lilja Júlíusdóttir, forstöðukona hjá Orkuveitunni, ræddi við Svein Helgason á Samorkuþingi 2025 um öryggismál og hvernig samtal, traust og samvinna getur skipt sköpum í að verja innviði á Íslandi. Sveinn og Kristrún Lilja ræða saman á Samorkuþingi 2025.
May 26, 2025
Öryggi og áfallaþol innviða
Karl Steinar Valsson yfirlögreglustjónn hjá ríkislögreglustjóra var annar frummælenda í lokamálstofu Samorkuþings 2025 þar sem fjallað var um áfallaþol mikilvægra innviða hér á landi og orkuöryggi í ljósi þróunar í Evrópu. Í viðtali við Svein Helgason, verkefnastjóra erlends samtarfs hjá Samorku, leggur Karl Steinar m.a. áherslu á virkt samtal og samvinnu milli lögreglu og orku- og veitugeirans til að efla enn frekar vernd innviða og öryggi. Karl Steinar segir það hafa verið mjög gagnlegt að hey...
April 11, 2025
REMIT: Hvað er það?
REMIT er umfjöllunarefni í nýjasta hlaðvarpsþætti Samorku. Þar ræðir Katrín Helga, lögfræðingur Samorku, við þær Hönnu Björgu Konráðsdóttur og Ninnu Ýr Sigurðardóttur hjá Raforkueftirlitinu, um nýjar reglur sem munu taka gildi á næstunni um viðskipti á raforkumarkaði. Þær fjalla um tilurð reglnanna og uppruna þeirra í Evrópu og hvaða þýðingu þær hafa fyrir íslenskar aðstæður. Frá upptöku þáttarins.
Jan. 21, 2025
Áhrif loftslagsbreytinga á veituinnviði
Veituinnviðir og þá sérstaklega fráveituinnviðir eru viðkvæmir fyrir flóðum, aukinni rigningu og öðrum loftslagsbreytingum. Í þættinum heyrum við dæmi um nýleg áhlaup á fráveitur vegna öfga í veðurfari, fræðumst við um þær aðgerðir sem verið er að ráðast í til að aðlagast eða draga úr áhrifum loftslagsbreytinga, heyrum um mikilvægi þess að styrkir til fráveituframkvæmda verði áfram veittir og virku samtali þegar kemur að skipulagsmálum og frekari uppbyggingu veituinnviða. Gestir þáttarins eru:...
Nov. 1, 2024
Kosið um græna framtíð
Orku- og veitumálin verða sennilega í brennidepli fyrir alþingiskosningarnar í lok mánaðarins, enda mörg brýn verkefni í málaflokknum á borði stjórnvalda. Kosningabaráttan mun snúast um hver hefur grænu sýnina, sýnina sem leggur grunninn að næsta vaxtarskeiði fyrir Ísland, því orka er súrefni atvinnulífsins og forsenda allrar verðmætasköpunar. Þetta segja þau Finnur Beck framkvæmdastjóri Samorku og Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulifsins, sem eru viðmælendur þáttarin...
July 16, 2024
Jarðhræringar III: Upplýsingamiðlun þegar mikið liggur við
Þegar fyrirtæki glíma við krísur er mikilvægt að réttar og ábyrgar upplýsingar komist hratt og vel til hagaðila, fjölmiðla og almennings. Það getur verið krefjandi í mikilli óvissu og undir miklu álagi eins og í jarðhræringunum á Reykjanesi og hvað þá þegar allir eru orðnir sín eigin fréttastofa með snjallsíma í vasanum. Upplýsingafulltrúarnir Birna Lárusdóttir hjá HS Orku, Sigrún Inga Ævarsdóttir hjá HS Veitum og Steinunn Þorsteinsdóttir hjá Landsneti, fara yfir mikilvægi góðra samskipta í þæt...
July 16, 2024
Jarðhræringar II: Hamfarir fyrir fólk og fyrirtæki
Jarðhræringar á Reykjanesi hafa reynt gríðarlega á orku- og veituinnviði þjóðarinnar, en hafa ekki síður reynt á fólkið sem staðið hefur í ströngu við að halda þeim gangandi. Petra Lind Einarsdóttir mannauðsstjóri HS Orku er gestur þáttarins og ræðir hún við Lovísu Árnadóttur um mannleg áhrif hamfaranna á starfsfólkið og á daglegan rekstur fyrirtækisins.
July 16, 2024
Jarðhræringar I: Þegar verstu sviðsmyndir raungerast
Góður undirbúningur fyrir jarðhræringar skipti sköpum þegar eldgos á Reykjanesskaga hófust. Enginn átti þó von á að verstu sviðsmyndirnar myndu raungerast. Í þættinum er farið yfir þá miklu vinnu sem farið hefur í undirbúning, viðbragð og lausnir til að verja mikilvæga orku- og veituinnviði á fyrsta eldgosatímabili í þúsundir ára. Viðmælendur eru þeir Guðmundur Helgi Albertsson verkstjóri á rafmagnssviði á Suðurnesjum, Halldór Halldórsson öryggisstjóri Landsnets og Jóhannes Steinar Kristjánsso...
July 3, 2024
Ný tækifæri til orkuöflunar
Er eitthvað vit í að nýta sólarorku á Íslandi? Hvað er vindorka á smærri skala? Munu heimili og fyrirtæki í framtíðinni hafa eitthvað hlutverk í nýrri orkuöflun? Þetta eru nokkrar spurningar sem starfshópur á vegum umhverfis-, orku- og loftslagsráðherrra tókst á við í nýrri skýrslu sem út kom fyrr á árinu. Í þessum þætti Lífæða landsins eru niðurstöður skýrslunnar ræddar við Ásmund Friðriksson þingmann og Gunnlaugu Helgu Ásgeirsdóttur Msc. í sjálfbærum orkuvísindum, en þau sátu bæði í starfshóp...