Oct. 21, 2026
Fyrsta vindorkuverið: Fólkið á bak við myllurnar
Fyrsta vindorkuver Íslands er komið í gang við Þjórsá og þá er gott tækifæri til að setjast niður og líta til baka.
Í þessum þætti spjöllum við á léttum nótum við Elínu Hallgrímsdóttur, staðarverkfræðing, og Sigurgeir Björn, yfirverkefnisstjóra Vaðölduvers, bæði hjá Landsvirkjun. Þau hafa fylgt verkefninu í gegnum súrt og sætt. Hér rifja þau upp það sem kom á óvart, það sem stóð upp úr og það sem þau lærðu á leiðinni frá hugmynd að fyrstu vindmyllunum sem snúast á hálendinu.