Lífæðar landsins
Lífæðar landsins er hlaðvarp Samorku um orku- og veitumál.
Recent Episodes
Oct. 21, 2026
Fyrsta vindorkuverið: Fólkið á bak við myllurnar
Fyrsta vindorkuver Íslands er komið í gang við Þjórsá og þá er gott tækifæri til að setjast niður og líta til baka. Í þessum þætti spjöllum við á léttum nótum við Elínu Hallgrímsdóttur, staðarverkfræðing, og Sigurgeir Björn, yfirverkefnisstjóra Vaðölduvers, bæði hjá Landsvirkjun. Þau hafa fylgt verkefninu í gegnum súrt og sætt. Hér rifja þau upp það sem kom á óvart, það sem stóð upp úr og það sem þau lærðu á leiðinni frá hugmynd að fyrstu vindmyllunum sem snúast á hálendinu.
Sept. 28, 2026
Snjallir mælar -betri yfirsýn
Hvað er eiginlega svona snjallt við snjallmæla og hvað breytist þegar hefðbundnum mælum er skipt út fyrir snjalla? Í þessum þætti Lífæða landsins ræðum við snjallmæla á mannamáli við Ingu Láru Jónsdóttur, framkvæmdastjóra þjónustu og snjallra lausna hjá HS Veitum, og Valtý Guðmundsson, deildarstjóra mælaumsýslu þar á bæ. Við förum yfir hvað snjallmælar eru og hvernig þeir virka, hvaða ávinningur felst í þeim fyrir heimili, fyrirtæki og veiturnar sjálfar og hvernig innleiðing þeirra gengur fyri
Aug. 10, 2026
Undir yfirborðinu: Fráveita framtíðarinnar
Fráveitutilskipun Evrópusambandsins mun hafa víðtæk áhrif á fráveitumál hér á landi og kalla á miklar framkvæmdir og fjárfestingar á komandi árum. Hvernig erum við í stakk búin til að takast á við þau verkefni? Í þættinum ræðir Hafdís Helga Helgadóttir við Aron Heiðar Steinsson, veitustjóri á Umhverfis- og framkvæmdasviði Reykjanesbæjar og Reynir Sævarsson, sem leiðir viðskiptaþróun og nýsköpun hjá EFLU, um stöðu fráveitumála á Íslandi, kröfur nýju tilskipunarinnar og þær áskoranir og tækifæri
June 25, 2026
Orkan í efnahagsljósi
Orkumálin eru krufin í hagfræðilegu samhengi í þessum þætti Lífæða landsins. Jón Gunnarsson greinandi hjá Samorku og Friðjón Þórðarson framkvæmdastjóri Qair á Íslandi kafa ofan í þau mál með Hafdísi Helgu Helgadóttur, upplýsingafulltrúa Samorku.
Dec. 19, 2025
Stækkun orkuvers í skugga jarðhræringa
Þann 1. desember var sjöundi áfangi Svartsengis, orkuvers HS Orku, tekinn í notkun og jókst þar með framleiðslugeta þess um þriðjung. Það er í sjálfu sér fréttnæmt að við bætist uppsett afl hér á landi, en í þessu tilfelli er það ekki síður vegna þess að orkuverið var stækkað á tímum jarðhræringa, eldgosa og mikillar óvissu. Stóðst framkvæmdin þó allar verk- og tímaáætlanir. Rafn Magnús Jónsson yfirverkefnisstjóri HS Orku og Yngvi Guðmundsson yfirverkfræðingur HS Orku ræða við Lovísu Árnadóttur
30
Nov. 10, 2025
Vestfirðir eru heitur reitur
Á Vestfjörðum hefur verið notast við rafkyntar hitaveitur í stað hefðbundinna jarðhitaveitna, því lítið hefur fundist í gegnum tíðina af nægilega heitu vatni sem gæti nýst til húshitunar. En með tækniframförum og myndarlegu átakistjórnvalda í jarðhitaleit á svæðinu hefur vonin aldeilis kviknað um að þetta geti breyst, íbúm á svæðinu til mikilla hagsbóta. Elena Dís Víðisdóttir, verkfræðingur á orkusviði hjá OrkubúiVestfjarða, ræðir uppganginn og stemninguna á Vestfjörðum við Lovísu Árnadóttur og